20 kíló!
18.3.2010 | 23:23
Ég má til að setja hérna inn færslu og skella því út í netheima, að ég er búin að missa rúm 20 kíló!
Ég viðurkenni það alveg, að ég er mjög ánægð með sjálfa mig og er að rifna úr stolti yfir þessum góða árangri mínum.
Ég er búin að vera svo feit í svo mörg ár og búin að reyna svo margt til að grenna mig. Svo að núna þegar þetta er að ganga svona vel og kílóin hrynja af mér, þá finnst mér ég geta sagt með sanni; ég er frábær!
Og svo er ég svo heppin að eiga ykkur að, vinir mínir hérna á blogginu og á facebook. Það er ekkert smá sem þið eruð búin að hrósa mér og peppa mig upp, ég tel mig svakalega lánsama að eiga ykkur að, þið eruð frábær! 
Hafið það sem ljúfast og eigið góða helgi
Kær kveðja 
Ykkar Ásdís Emilía
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Geggjaður göngutúr!
20.2.2010 | 16:28
Ég var að koma úr tæplega klukkutíma löngum, yndislegum göngutúr, labbaði í kringum Helgafellið 
Hugsaði heilmikið á leiðinni
ég er svo óendanlega þakklát fyrir þá stefnu sem líf mitt hefur tekið undanfarna þrjá mánuði. Kílóin fjúka af mér og andleg og líkamleg vellíðan eykst jafnt og þétt. Hjarta mitt er fullt þakklætis vegna þess dásamlega lífs, sem ég á í dag. Ég á yndislegan mann
klár, flott og góð börn
og svo bý ég á þessum dásamlega stað, Vestmannaeyjum, sem býður upp á þessa óborganlegu náttúru til að fara út í göngutúra í.
Er nokkuð hægt að fara fram á meira?!
Kveð ykkur á þessum yndislega laugardegi, elsku vinir. Njótið lífsins!
Ykkar Ásdís Emilía 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ég - aðeins rýrari!
28.1.2010 | 23:27
Ég ætla að setja hérna inn tvær myndir af mér. Önnur er tekin í endaðan júlí í fyrrasumar, en hin núna í dag. Það munar um það bil 14 kílóum á þessum myndum.
Er ekki einhver oggulítill munur á mér? 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Þrettándinn í Eyjum!
8.1.2010 | 22:33
Vorum á þrettándagleðinni hér í Eyjum og það var alveg óborganlega gaman. Þrettándinn var færður yfir á föstudaginn 8. janúar, til að þetta hitti á helgi. Það er svo rosalega mikið af Eyjafólki sem býr uppi á landi, sem kemur hingað á gleðina og er yfir helgina hjá fjölskyldum sínum.
Ég var nú ekkert alveg í stuði að fara, þreytt eftir vinnudaginn og svona, en dreif mig svo bara og sé sko ekki eftir því, þetta er svo skemmtilegt.
Nýja árið leggst alveg svakalega vel í mig 
Líði ykkur sem allra best, elsku vinir.
Ykkar Ásdís Emilía 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Gleðilega hátíð!
24.12.2009 | 15:32
Gleðileg jól, elsku hjartans vinir og hafið það sem allra, allra best yfir hátíðarnar.
Kær jólakveðja 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýtt líf hjá konunni!
6.12.2009 | 22:48
Nú eru liðnar tæpar 3 vikur, frá því að ég byrjaði í átakinu mínu. Og ég er á þvílíkri hörku siglingu í kílóatapi, að það er bara geggjað.
Ég er dottin inn á svo ótrúlega frábæra braut, varðandi mataræðið. Á þessum tíma sem liðinn er, hef ég ekki borðað kartöflur, hrísgrjón og pasta og ekki neitt sem inniheldur sykur og hveiti. Ég er svo innilega sátt við að taka þessar fæðutegundir út hjá mér og líka hjartanlega sátt við það, að vera í þessu átaki núna í desember, þessum mikla matar-köku-og konfektmánuði. Konan er bara búin að taka þessa ákvörðun og er dásamlega sátt og sæl með það.
Mér líður svo yndislega vel, er öll að léttast, bæði á líkama og sál og er líka á fullu í ræktinni og það er að gera mér svakalega gott. Það er óborganleg tilfinning að fara í líkamsrækt, púla á fullu og reyna vel á sig og finna svo að loknum tímanum endorfínið flæða um kroppinn. Það er æði!
Ég veit að það er fyrst og fremst ég sjálf, sem hvet mig áfram, en ég er líka búin að fá frá ykkur, elsku vinirnir mínir, þvílíkt ómetanlegan stuðning, upppepp og yndislegt hrós, þið eruð frábær!
Og ég sleppi nú ekki elsku manninum mínum, honum Pétri. Hann er stöðugt að hvetja mig, hrósa mér og láta mig finna hvað það sé yndislegt að sjá mig svona glimrandi ánægða og hressa. Hann grínast nú reyndar með það, svona inn á milli, að þetta sé nú eiginlega ekki hægt að ég sé að rýrna svona, það verði þá minna fyrir hann að elska - thíhíhí
Elska þig, ástin mín.
Takk, þið öll, fyrir að vera til og Guð geymi ykkur 

Ykkar Ásdís Emilía
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Að blogga, já!
21.10.2009 | 17:27
Jeremías!
Ég er búin að opna hérna glugga fyrir nýja færslu - og sit svo hér og segi við sjálfa mig; já, já, hvað á svo að blogga um?! 
Æ, ég veit það ekki. Það keppast allir við að blogga um ástandið í þjóðfélaginu, en ég bara nenni því nú ekki, það er nóg af fólki sem er að sinna því og gerir það vel. 
Annars er ég komin í baráttu við offituna, er byrjuð í átaki með góðu fólki. En ég bara á í vandræðum með sjálfa mig, ég er svo hryllilega lin við mig. Ég leyfi sjálfri mér að komast upp með að fara ekki út að ganga og hvísla að sjálfri mér, að það sé nú í lagi að borða þetta eða hitt núna. Ég svona valsa á milli, er alveg öfga hörð og ákveðin eina stundina, en svo hryn ég niður í kæruleysi og sinnuleysi. Mig vantar svo hrikalega eitthvað sem heldur "motiveringunni" stöðugt virkri. Ég er svo hrikalegt letiblóð og værukært sófadýr, að það er ekki nokkru lagi líkt. 
En annars er ég bara góð. Við erum öll heil heilsu, Guði sé þökk fyrir það. Við Pétur höldum bæði okkar vinnu og það er svo sannarlega þakkarvert.
Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna, mér tókst allavega að blogga smá.
Hafið það sem allra, allra best, kæru vinir - mér þykir vænt um ykkur

Ykkar Ásdís Emilía 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Kærleikurinn!
10.9.2009 | 23:00
Halló elsku vinir!
Ég fór í fermingarmessu síðastliðinn sunnudag. Já, ég er að fara að ferma, eða - við erum að fara að ferma. Hún á að fermast í vor dóttir hans Péturs, hún Inga Lára, yndislega falleg og góð stúlka sem mér þykir undurvænt um.
Smá "jók" mynd sem hún tók af sér sjálf.
En ég allavega hlakka mikið til að standa í þessu í vor, það er bara yndislegt að ferma og standa í fermingarundirbúning.
En aftur að fermingarmessunni. Þeir sáu báðir um messuna, prestarnir okkar og las annar þeirra upp úr 13. kapítula Fyrra Korintubréfs Páls Postula, sem mér finnst ofboðslega fallegt og mikill sannleikur í.
Þótt ég talaði tungum manna og engla,
en hefði ekki kærleika,
væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
Og þótt ég hefði spádómsgáfu
og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking,
og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað,
en hefði ekki kærleika,
væri ég ekki neitt.
Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum,
og þótt ég framseldi líkama minn, til þess að verða brenndur,
en hefði ekki kærleika,
væri ég engu bættari.
Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður.
Kærleikurinn öfundar ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin,
hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum.
Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok,
og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok.
Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum.
En þegar hið fullkomna kemur, þá líður það undir lok, sem
er í molum.
Þegar ég var barn, talaði ég eins og barn,
hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn.
En þegar ég var orðinn fulltíða maður, lagði ég niður barnaskapinn.
Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu,
en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
Nú er þekking mín í molum,
en þá mun ég gjörþekkja, eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.
En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt,
en þeirra er kærleikurinn mestur.
Ég bið þess að þið eigið ljúfa nótt og góða komandi helgi.
Ykkar Ásdís Emilía 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Rosalega góð grein!
12.8.2009 | 13:36
Minn ástkæri sambýlismaður benti mér á grein, sem var í Mogganum í gær. Ég tók mér það bessaleyfi að copy/paste hana og vona bara að það sé allt í lagi, höfundarréttarlega séð eða þannig.
Sjö venjur þeirra sem eru hamingjusamir
Eftir Ingrid Kuhlman
"„Flestir eru eins hamingjusamir og þeir ákveða að vera." Abraham Lincoln"
HAMINGJUSAMASTA fólkið í veröldinni deilir sjö mjög áberandi venjum. Ef þú ert að leitast við að auka almenna hamingju þína er gott að íhuga þessar venjur:
1. Vertu hluti af einhverju sem þú trúir á. Þetta getur verið hvað sem er. Sumir taka virkan þátt í félagsstörfum, aðrir finna athvarf í trúnni og enn aðrir slást í hóp með samtökum, sem þeir hafa miklar mætur á, eða finna ástríðu í starfi sínu. Sama hvað um er að ræða, sálfræðilega útkoman er sú sama. Þeir helga sig einhverju sem þeir hafa mikla trú á, og það færir þeim hamingju og tilgang.
2. Verðu tíma með vinum og fjölskyldu. Ánægjulegt líf er líf sem við deilum með vinum og fjölskyldu (í þessari röð). Því nánari sem tengslin eru og því oftar sem við eigum í samskiptum við þau, því hamingjusamari verðum við.
3. Íhugaðu hið góða. Fólk einblínir frekar oft of mikið á neikvæða útkomu og ver litlum tíma í að velta fyrir sér árangri sínum. Það er okkur eðlislægt að vilja leiðrétta óæskilegar aðstæður og einbeita okkur að því, en það verður að vera heilbrigt jafnvægi í meðvitund okkar. Það er mikilvægt að íhuga á meðvitaðan og opinn hátt það góða á meðan við vinnum ötullega að því að leiðrétta það sem er miður gott. Áframhaldandi almenn meðvitund um daglegan árangur getur haft jákvæð áhrif á almenna tilfinningalega hamingju okkar.
4. Notfærðu þér það sem þú býrð yfir. Fólk er yfirleitt hissa þegar það sér líkamlega fatlaðan einstakling sýna sterk einkenni tilfinningalegrar hamingju. Hvernig getur einhver með það takmarkaða möguleika verið svona hamingjusamur? Svarið liggur í því hvernig það notar það sem það býr yfir. Stevie Wonder er blindur, en hann notfærir sér heyrnina í ástríðu sinni fyrir tónlist, og hann er í dag með 25 Grammy-verðlaun því til sönnunar.
5. Skapaðu góðan endi eins oft og mögulegt er. Máttur enda er hreint ótrúlegur. Það hvernig atburður endar hefur djúpstæð áhrif á almenna upplifun fólks af atburðarins í heild sinni. Ímyndaðu þér skáldsögu sem ögrar hugsunum þínum og er sæmilega vel skrifuð. Endirinn er hins vegar hreint út sagt glataður. Jafnvel þó að sagan hafi verið hrífandi þangað til í blálokin, myndirðu líklega ekki mæla með bókinni við vini. Fólk man alltaf endinn. Ef endirinn er ánægjulegur, skapar upplifunin hamingju. Gott er að ganga alltaf frá lausum endum, skilja við hlutina á góðum nótum og skapa ánægjulega enda í lífi þínu eins oft og hægt er.
6. Nýttu persónulega styrkleika við að koma hlutum í framkvæmd. Öll búum við yfir sérstökum styrkleikum. Öll höfum við mismunandi hæfileika og færni. Tilfinningaleg hamingja er eðlileg þeim sem nýta styrkleika sína við að framkvæma hluti. Það að ljúka við verkefni skapar ávallt árangurstilfinningu. Ef árangurinn er eingöngu byggður á persónulegri færni þinni er lífeðlisfræðilega umbunin ómetanleg.
7. Njóttu litlu hlutanna. Bestu hlutirnir í lífinu eru ókeypis - og í flestum tilfellum ekki einu sinni hlutir. Þeir birtast í formi fábrotinnar ánægju og sýnast á mismunandi stöðum og handahófskenndum augnablikum. Þetta snýst allt um það að gefa sér tíma til að taka eftir appelsínugulu sólarlaginu í vatninu á meðan þú heldur í höndina á þeim sem þér þykir vænt um. Að taka eftir þessum augnablikum og taka þátt í þeim reglulega mun færa þér mikla hamingju.
Höfundur er framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar.
Kær kveðja og hlýtt faðmlag til ykkar, elskurnar 
Ásdís Emilía
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Afmæli!
10.8.2009 | 11:28
Ég á afmæli í dag. Ég ætla nú ekki að setja þetta hérna inn til að auglýsa það að ég eigi afmæli, heldur til að setja fram hugleiðingar mínar í sambandi við það að eiga afmæli, lofa afmælisdagana sem færast yfir og líka árin sem færast yfir.
Það er nefnilega einmitt mín pæling, ég þakka fyrir árin sem ég fæ að lifa og afmælisdagana sem ég fæ að njóta með fjölskyldunni minni. Ég horfi ekki til þess með hryllingi, eins og sumt fólk gerir, að bölva árunum sem færast yfir viðkomandi og að jafnvel halda aldrei upp á afmælið sitt, vegna þess að fólk vilji ekki fagna því að færast nær elliárunum.
Það er núna 49 ára afmælið mitt, sem gerir það að verkum að ég verð 50 ára á næsta ári. Og ég finn bara fyrir því að hlakka til á næsta ári, að halda upp á það, er meira að segja farin að leggja drög að því hvar og hvernig ég held upp á það, það verður allavega óborganlega gaman.
En ég allavega þakka Almættinu, að fá að eiga þetta líf, við nokkuð sæmilega heilsu. Ég á yndislegan mann, hann Pétur minn, sem ég elska út af lífinu og mig grunar sterklega að hann elski mig eitthvað smávegis líka
Ég á tvö börn og þrjú stjúpbörn, sem ég elska óskaplega mikið. Lifi sem sagt bara góðu lífi.
Og svo á ég ykkur bloggvinirnir mínir. Flest ykkar hef ég aldrei hitt, en mér þykir samt undurvænt um ykkur, þið eruð góðir vinir.
Líði ykkur sem best og eigið yndislegan dag, það ætla ég að minnsta kosti að gera.
Kær kveðja 
Ásdís Emilía
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)

amman
asdisomar
audurproppe
christinemarie
disin
dolli-dropi
gledibankinn
gudruntora
helgigunnars
hross
jogamagg
joninathorbjorg
jyderupdrottningin
kollukot
kruttina
lady
milla
naflaskodun
ragnabi
ragnheidurhilmarsd
ringarinn
sigro
sirri
skordalsbrynja
solir
tildators
vogin





